26.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)
29. mál, námskeið verslunarmanna
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Það vill svo illa til að frams.m. þessa frv. (M. Bl.) er sjúkur í dag, og getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér.
Þess vegna finn eg mig knúðan til að svara þessum hraparlega misskilningi, sem fram kom hjá háttv. 2. þm. Árn. (S. S.)
Það er tekið fram í frv. að tíminn, að meðtöldum matmálstíma, megi ekki fara fram úr 12 stundum á dag. Matmálstíminn er ákveðinn 2 stundir; þá ætti ekki að þurfa neinn sérstakan reikningsmann, til þess að sjá, að sjálfur vinnutíminn er þá aldrei meira en 10 stundir.
Það er ennfremur skýrt tekið fram, að ekki megi nota unglinga þessa til neinnar vinnu, eftir að sá lögskipaði vinnutími er á enda.
Þó geta auðvitað komið þau tilfelli, sem varla er hægt að komast hjá að nota unglingana. Þetta þekkjum við betur, þegar póstskipin eru að koma í verzlunarstöðum hér og hvar.
Það getur að vísu verið álitamál, hvort ekki ætti að breyta aldurstakmarkinu; en eg fyrir mitt leyti álít þess enga þörf. Eg hefi sjálfur átt son, er 12 ára gamall vann 10 stundir á dag, og hlaut engar skemdir af.