21.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)

33. mál, botnvörpuveiðar

Framsögumaður (Jón Þorkelsson):

Eg hefi í þetta sinn ekki annars að geta en að við höfum komið fram með breyt.till. í þá átt, sem við gerðum ráð fyrir við 1. umr., í þá átt að stjórninni væri heimilt að gera undanþágu þá, sem hér ræðir um, en ekki að henni væri gert það að skyldu. Undanþágan gildir að eins um eitt ár í senn.

Vegna þess að málið var svo vel rætt við 1. umr., skal eg ekki fara frekari orðum um það nú.