16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)
36. mál, sala á Kjarna
Pétur Jónsson:
Mér finst menn ekki hafa nægilega athugað það, að ekki virðist nein brýn nauðsyn á að hraða sér með sölu á þessari jörð. Menn hafa verið tvíbentir í því, hvort selja ætti jörðina eða ekki. Hvað liggur þá á? Allir hljóta að sjá það, að það eina, sem skaðað gæti Akureyrarbúa, ef málið biði, er verðhækkun jarðarinnar, sem þá líka aftur á móti yrði gróði fyrir landssjóðinn.
Þá virðist það og liggja í augum uppi, að ef landssjóður selur jarðir sínar, og selur þær öðrum en ábúendum, eigi þær að lenda í eign þess hreppsfélags, er þær liggja í. En eg er mótfallinn því, að landssjóður selji þessa jörð, hver sem í hlut á, vegna þess, að eg býst við, að svo gæti farið, að hann þyrfti að nota hana sjálfur fyr en síðar.
Sé nú jörð þessi á annað borð seld, verður það ekki aftur tekið. En á meðan hún er óseld, er alt af möguleiki til að Akureyrarbær geti eignast hana, og það er skaði fyrir landssjóðinn að missa umráð sín yfir þessari jörð.