01.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)
41. mál, bankavaxtabréf
Framsögumaður (Bjarni Jónsson):
Rétt undir fundinn núna talaði eg við gæzlustjóra Kristján Jónsson um þetta mál og sagði hann, að sér litist vel á þetta, og að hann áliti gott og hagkvæmt fyrir bankann, að slík heimildarlög yrðu gefin út. Eg get þessa að eins í því skyni, að menn geti fengið tryggari stað, en mig í þessu efni, þeir sem eitthvað þurfa að hallast upp við.