26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1833)

51. mál, stofnun landsbanka

Framsögumaður (Magnús Blöndahl):

Eg skal ekki fara mörgum orðum um þetta frumv. Háttv. deild hefir tekið því vel. Skal að eins leyfa mér, að benda á breyt.till. á þingskj. 631 — sem eg vona, að sé til bóta frá því, sem áður var. Með þessu held eg að sé komið í veg fyrir, að hægt sé, að misskilja það á nokkurn hátt. Þá er viðaukatill. á þingskj. 634, og mælir hún með sér sjálf. Vona, að deildin taki frumv. vel, og samþykki bæði breyt.till. og viðaukatill. — og að síðustu frumv. í heild sinni.