26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

51. mál, stofnun landsbanka

Einar Jónsson:

Eg þykist hafa hér fullkomið leyfi til að gera hér örstutta athugasemd, því eg ætla að nota hana til þess að bera hönd fyrir höfuð mér. Eg vil sem sé ekki skerða einkaleyfi eða einkarétt háttv. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) til þess að tala tóma vitleysu.