23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)

92. mál, hlunnindi bókasafna

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Höfundar þessarar breyt.till. (á þgskj.580) koma með hana að nokkru leyti vegna upplýsinga, sem hæstv. ráðherra (B. J.) gaf, og eins og áður hefir verið tekið fram missir Ísafjarðarkaupstaður einkis í við þetta. Er því óþarft að ræða mál þetta frekar, einkum er góð rök hafa færð verið í málinu, sér í lagi af hæstv. ráðherra (B. J.).