05.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)

50. mál, kirknafé

Jón Ólafsson:

Það ætti nú máske ýmsum öðrum að vera annara um þetta en mér. En úr því að þingið fjallar um þetta, vildi eg að eins segja fáein orð.

Mér hefir skilist það tilgangur hins almenna kirkjusjóðs, að bæta kirkjur þær, er hrörlegastar væri og lána fé til að byggja nýjar.

Eg vil nefnd í málið, af því að mér finst frv. styðja hag þeirra kirkna, er söfnuðirnir sjálfir annast.