28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)
50. mál, kirknafé
Flutningsmaður (Stefán Stefánsson):
Því var hreyft við aðra umræðu þessa máls, að eg væri horfinn frá því áliti mínu, eða hefði tekið aftur, að ósæmilegum brögðum hefði verið beitt til þess, að fá þann söfnuð, sem hér er um að ræða söfnuð Möðruvallaklausturskirkju til þess að taka við kirkju sinni til eignar og umsjár, en eg neita því í fylsta máta, að hafa afturkallað nokkurt orð af því, er eg tók fram við fyrri umræður málsins, en vel að merkja, þá voru þau orð ekki töluð til nokkurs einstaks manns, heldur til framkvæmdarvaldsins í landinu, og þá jafnframt til kirkjustjórnarinnar sem í fyrstu gekk ágreiningslaust að skilorði því, sem söfnuðurinn tók kirkjuna með, og afhenti álagsupphæðina söfnuðinum, til að ávaxtast í sparisjóði hreppsins, en sem heimtar svo sjóðinn afhentan aftur í hinn almenna kirkjusjóð, þegar hann er allur kominn í útlán gegn tryggum veðum, og hvorki söfnuðurinn eða sparisjóðsstjórnin gat haft nokkurn grun um slíkan boðskap. Þetta er það, sem eg hefi leyft mér að segja um, að sé verið að svíkjast að söfnuðinum og brjóta gerðan samning.
Að þessu verki, vona eg, að þingdeildin eða löggjafarvaldið vilji ekki vinna.