15.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)

145. mál, löggilding verslunarstaða að Klettsvík

Flutningsmaður (Sigurður Gunnarsson):

Eg vil aðeins geta þess, viðvíkjandi viðaukatill., sem hér liggur fyrir, að hún er í því fólgin að færa frumv. í það form, sem það hefði upphaflega átt að vera í og er samhljóða því, sem áður hefir verið samþykt hér í þinginu.

Vona eg, að háttv. þingd. samþ. þessa viðaukatill.