18.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)
93. mál, löggilding Viðey
Björn Sigfússon:
Að sönnu verð eg að játa, að málið liggur mér í léttu rúmi, en eg fæ eigi séð, að þingið sýni nokkra ósamkvæmni með að fella þetta mál. Augnamiðið með löggildingar áður hefir ávalt eða oftast verið, að stytta vegalengdir fyrir menn, er langt áttu að sækja í kaupstað, en hér er ekki um slíkt að ræða. Þetta mál var felt í neðri deild á síðasta þingi, og því ósamkvæmni, ef deildin vildi nú samþykkja það. (Jón Jónsson 1. þm. S.-Múl.: Í deildinni sitja ekki sömu menn). Sumir þm. eru hinir sömu, en hjá nýjum þm. er hér ekki um ósamræmi að ræða.
2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) sagði, að útvegsbændur mundu hljóta skaða af að frumv. væri hafnað, þá yrðu eins og nú skip þau, sem flytja salt og kol til Viðeyjar að koma hingað til Reykjavíkur og greiða hér hafnargjöld; það gerði þær vörur dýrari. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) hrakti þetta, með því að benda á, að hjá því má sneiða með því að slík skip komi fyrst til Keflavíkur eða Hafnarfjarðar. Þar þurfa þau ekki að greiða hafnargjöld. Þar er þó ósamræmi milli þeirra samþingismannanna, og vafalaust hefir fyrri þm. réttara fyrir sér.
Fyrir þessa sök er ekki heldur þörf á löggildingunni. Eg mun því greiða atkv. móti frumv.