17.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)

93. mál, löggilding Viðey

Forseti (H. Þ.):

Inn í þetta frumvarp er komið mál, sem felt var snemma á þessu þingi hér í deildinni (Viðey). Efri deild hefir tekið það upp, með því að lauma því inn í þetta samsteypufrumvarp, þótt hún að réttu lagi hefði átt að vísa þannig lagaðri viðbót frá. Auðvitað gæti eg vísað frumv. frá í heild sinni, sakir þessa ágalla, sem eg verð að telja beint brot á þingsköpunum, en það væri hart vegna þess að það er nú hnýtt við aðrar löggildingar, sem voru lögformlega samþ. hér í deildinni. Vonandi að þetta verði lagað við 2. umr.