27.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1499 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)
68. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):
Eg vil lýsa því yfir, að eg er ekki á sama máli og hæstv. ráðherra. Laun og eftirlaun ráðh. eru ákveðin með sérstökum lögum frá 3. okt. 1903. Og þótt þau séu nefnd í stjórnarskránni álít eg, að það hafi ekki neina þýðingu í þessu sambandi, og frumv. þetta sé ekki að neinu leyti breyting á stjórnarskránni.