08.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)

97. mál, heiti á alsherjarstofnunum

Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):

Eg hefi fátt eða ekkert um þessa till. að segja. Tók hið helzta fram um daginn, þegar talað var um svipað efni, sem féll þá, án efa af misskilningi margra, því að bæði var frumv. það vel úr garði gert og málefnið sjálft er merkilegt.

En nú gefst mönnum kostur á að bæta úr því glappaskoti með því að sþ. till. þessa, er fer í þá átt að landstjórnin leggi frv. fyrir næsta þing um þetta merkilega og áríðandi málefni.