15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)
102. mál, vegamál
Framsögumaður (Benedikt Sveinsson):
Svo sem sjá má á nefndarálitinu, hefir nefndin klofnað í þessu máli. Meiri hlutinn hefir ekki getað fallist á frumv., og jafnvel ekki með breyt.till. þeim, sem virðulegir flutningsmenn frv. hafa komið fram með, er þeir sáu, hversu þunglega horfði. Eins og getið er í nefndarálitinu, hefir nefndin borið þetta undir verkfræðinginn, og einnig haft í höndum bréf hans til stjórnarráðsins um frv., sem prentað er aftan við það. Honum þótti ekki fremur en nefndinni ástæða til þess að breyta lögunum á þann hátt, sem fram á er farið í frumv.
Vera má, að það sé sanngjarnt, að sýna einhverja linkind þessum sýslum, en þá mundi og vafalaust jafnframt verða að létta á Norður-Múlasýslu viðhaldskostnaði Fagradalsbrautarinnar, sem sýslan ber að þriðjungi móts við Suður-Múlasýslu og landssjóð.
Sama er að segja um úttekt flutningabrauta. Óheppilegt þótti nefndinni að breyta þeim ákvæðum, er nú gilda, enda taldi og verkfræðingurinn það örðugt.
Eg þarf ekki að fjölyrða um þetta, því að mönnum mun vera málið ljóst af skjölum þeim, sem að því lúta.