08.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)

110. mál, þingtíðindaprentun

Flutningsmaður (Björn Jónsson):

Eg verð að telja það hégóma að fara að skipa nefnd í þetta mál, og auka með því nefndarfarganið í þinginu, þar sem nú munu vera nál. 40 nefndir starfandi. Málið er heldur ekki svo stórt eða flókið, að það sé miklum erfiðleikum bundið fyrir þingmenn að glöggva sig á því. Eg verð því að leyfa mér að mótmæla nefndarkosningu í þessu máli.