15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)
128. mál, bréfhirðing á Dynjanda
Ráðherrann (H. H.):
Eg tek því með mestu sálarrósemi, að háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th .) ásakar mig um að fylgja föstum reglum; eg vona, að hann sjái sjálfur, að slíkt hið sama ætti hann að gera.
En að samþykkja lítthugsaðar till. um einstök atriði í verksviði stjórnarinnar, getur leitt til þess, að stjórnin neyðist til þess að ganga fram hjá þeim og ef til vill ganga þvert á móti þeim. Stjórnin verður að fara eftir föstum meginreglum um bréfhirðingar og aukapósta, og fara eftir viðskiftaþörfinni, bréfafjölda og fólksfjölda, og því sem haganlegast er fyrir heildina, en ekki eftir því, hvort þingmenn eru meira eða minna sniðugir og duglegir til þess að drífa í gegn einhverja kjördæmis-tillögu, ef til vill með litlum atkvæðamun, með flokksfylgi og jafnvel hrossakaupum stundum; eg á alsekki við það, að slíku sé hér til að dreifa, og eg hefi ekkert á móti bréfhirðing á Dynjanda og aukapósti til Furufjarðar. Það er að eins þingsályktunarleiðin í þessum efnum, sem mér finst óviðfeldin og óviðeigandi og jafnvel viðbúið, að slík brúkun á þingsályktunum raski því hlutfalli, sem á að vera milli verksviðs löggjafarvalds og framkvæmdarvalds, og dragi úr virðingu þeirri, sem stjórnin ætti að bera fyrir ályktunum alþingis, ef þær eru rétt notaðar.
Ef till. verður ekki tekin aftur, virðist mér eiga að setja nefnd í málið til að athuga það, en fella till. að öðrum kosti.