15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (2486)

Umræður um kjörbréfin

Björn Jónsson:

Eg skal leyfa mér að vekja athygli á því að þingið er þegar búið að samþykkja kosningu annara þeirra þingmanna, sem um ræðir í kærunni, sem sé fyrra þm. Húnv. (H. G.). Kjörbréf þess þingmanns var til meðferðar í annari deild, og þótti ekki ástæða til að sinna kærunni þar.