16.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (2491)

Umræður um kjörbréfin

Kristján Jónsson:

Eg skal geta þess fyrir hönd nefndarinnar, að hún hefir ekki tekið þetta atriði til íhugunar; hún hafði ekki skilið hlutverk sitt á þá leið. En það mætti nú fela nefnd, annaðhvort þessari eða annari til þess kosinni nefnd, að koma með tillögu um kjör eða þingsetu hins þingmannsefnisins.