19.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (2538)
Lausnarbeiðni varaforseta efri deildar
Kristinn Daníelsson. Eg hafði hugsað mér að tala ekki, en sérstaklega ef ég talaði, að tala á undan háttv. 5. kgk., en nú er hann dauður, en eg vil þó beina til hans nokkrum orðuni, en eg vona að mér takist að gjöra það svo vægilega og hóglega, að hann verði ekki meiddur af.
Háttv. 5. kgk. spurði aftur og aftur, hví meirihl. væri svona hræddur. En hér getur auðvitað ekki verið um neitt slíkt að tala, flokkurinn er svo sterkur, að hann hefir ekkert að óttast. Hitt er aðalatriðið, hvernig meirihl. megi ráða sem bezt ráðum sínum, og við lítum svo á, að þetta sé það bezta ráð sem meirihl. á í fórum sinum, og það væri full ástæða fyrir minnihl. að taka þessu vel og liðlega. Háttv. 5. kgk. talaði mikið um það stöðvunarvald, sem minnihl. ætti að hafa. Eg skal ekki fara mörgum orðum um það. Það getur verið gott og gagnlegt. En eg sé ekki, að þetta stöðvunarvald rýrnaði neitt þótt forsetunum væri veitt lausn. Það mundi þvert á móti gjöra það drýgra ef minnihlutinn væri liðlegur en ekki um of kappsfullur.
Eg hygg að háttv. 4. kgk. hafi farið of langt í því atriði er hann sagði, að þetta væri ekki umræðu vert, þar sem meirihl. hefði ekki nokkra verulega ástæðu fyrir sínu máli. En það er ofur eðlilegt, að minnihl. komi ekki auga á ýmsar ástæður, sem kunna að vera góðar og gildar, og glöggvar og ljósar fyrir meirihl. Í dag kom t. d. eitt slíkt atriði fyrir, þar sem minnihl. æskti nafnakalls til þess að leiða í ljós, hvort það væri flokksmál, og slík atriði geta alt af komið fyrir.
Þá tók háttv. 4. kgk. það fram, að þeir sem nú yrðu valdir forsetar gætu skorast undan að taka á móti kosningu. Það er auðvitað að þeir gætu færst undan því, en þeir yrðu að sækja sama veg og hinir, að biðja um lausn og skjóta máli sínu til deildarinnar. Og eg ber það traust til deildarinnar, að hún skeri réttilega úr, hvort gildar ástæður séu fyrir lausnarbeiðninni eða ekki.
En hitt er spurning, hvort hér skuli ráða einfaldur meiri hiuti eða »kvalificeraður« meiri hluti. Mér sýnist ekki betur en að þetta sé venjulegt dagskrármál, og vona, að forseti vilji úrskurða á þá leið. En þótt forseti ekki úrskurðaði þannig, þá vil eg ráða minnihl. til að greiða atkvæði með meirihl. Eg ræð ekki svo, af því að meirihl. sé hræddur, heldur af því að til þess liggja góðar og gildar ástæður fyrir minnihl. sjálfan.