13.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (2594)

Lenging þingtímans

Forseti:

Með því að hinn lögboðni þingtími nú er liðinn, en þingdeildin hefir enn með höndum mörg mikilsvarðandi mál, sem eru óútkjáð, þá leyfi eg mér að beiðast þess, að hæstv. ráðherra lengi þingtímann að minsta kosti um hálfan mánuð, eða svo lengi, að störfum þingsins geti orðið lokið.