18.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (2608)

Ferðakostnaðarreikningar

Lárus H. Bjarnason:

Það eru komnar fram tvær tillögur: að vísa málinu til ferðakostnaðarnefndar, eða að kjósa 3 manna nefnd, en það er á móti þingsköpunum að taka nokkra ályktun, úr því að það gleymdist að fá samþykki hæstv. ráðherra til afbrigða frá þingsköpunum. Annaðhvort á háttv. forseti að taka málið út af dagskrá eða forsetar deildanna að taka málið til úrskurðar ályktunarlaust.