26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)
111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu
Jón Ólafsson:
Eg ætla ekki að fara langt út í þetta mál; það er orðið svo þaulrætt, að eg finn enga ástæðu til að ræða það mikið frekar. Eg ætlaði að eins með fáum orðum að minnast á breyt.till. lítið eitt. Í 1. lið er óliðlega að orði komist. Hver semur lög félagsins? Eins og stendur er því engin trygging fyrir því, að landssjóður hafi atkvæðisrétt, þótt hann hafi sína fjóra menn. Með þessu er engin trygging gegn því, að hinir hluthafarnir, sem hafa hluti dreifða, geti borið umboðsmenn landssjóðs ofurliða. Það er nefnilega al-títt, þótt vitlaust sé, að láta ekki atkvæði fylgja hverjum hlut, heldur ákveða, að enginn einn hluthafi megi hafa meira en tiltekna tölu atkvæða (t. d. 5 eða 10), hversu marga hluti, sem hann á. En að þeir, sem færri hluti eiga, hafi atkvæði fyrir hvern hlut. Hlutir Thore-félagsins geta vel verið dreifðir á margar hendur, svo að þeir hluthafar ráði lögum og lofum, beri landssjóð alveg ofurliða. Að ráðherrann starfar að þessu launalaust, það er til bóta. En að öðru leyti er frumv. ekki hót betra en áður, og »endurbótin« er að eins blekking ein og falskar orðagyllingar á frumv.