13.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (2657)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Lárus H. Bjarnason:
Geta má þess, að það hefir verið undantekningarlaus vani, að skifta 1. umræðu í fjárlögunum. Allir hafa búist við, að svo yrði einnig nú, og því ekki búið sig undir að tala um málið á þessum fundi. Það mælir líka með skifting 1. umræðu, að tíminn verður naumur að öðrum kosti, til þess að koma með breytingartillögur við frv. Það er engin ástæða til að óttast, að tvískiftingin mundi tefja tímann til muna. Það má alt af fá leyfi ráðherra og deildar til afbrigða frá þingsköpunum og hraða málinu þannig.
Eg vil halda fast við þá venju, sem undanfarandi þing hafa fylgt að þessu leyti. En ef háttv. meirihl. vill breyta út af venjunni, þá verður minnihl. auðvitað að sætta sig við það sem annað.
Kom fram tillaga um að fresta 1. umr., en samþ. var með 7 atkv. gegn 4 að vísa málinu til 2. umr. nú þegar. Var málinu síðan í e. hlj. vísað til fjármálanefndarinnar