18.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

17. mál, kosningar til Alþingis

Sigurður Stefánsson; Frumvarp þetta er komið frá neðri deild, en hefir inni að halda ýms ákvæði, sem þurfa athugunar við, sérstaklega ákvæðið um færslu kjördagsins. Um það ákvæði eru mjög skiftar skoðanir. Mér finst því full ástæða til að atbuga frumv. í nefnd, og legg til að skipuð verði 3 eða 5 manna nefnd í málið.