18.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

17. mál, kosningar til Alþingis

Kristinn Daníelsson:

Eg álít heppilegra að setja 5 manna nefnd í málið. Starfið er ekki mikið og verður því ekki að ræða um neina verulega eyðslu á kröftum deildarinnar. En vegna kjördagsfærslunnar er æskilegt að sem flestir menn, kunnugir í sem flestum héruðum, beri ráð sín saman.