03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

36. mál, sala á Kjarna

Steingrímur Jónsson:

Eg verð að líta svo á, að Hrafnagilshreppur hafi forkaupsréttinn, og úr því að hreppurinn á almennum sveitarfundi sækir um forkaupsréttinn, þá verð eg að líta svo á, að ekki megi selja Akureyri jörðina. Eg er því á móti því.