03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (477)
36. mál, sala á Kjarna
Ráðherra (H. H.):
Háttv. þm. Strandamanna talaði mikið um undantekningarákvæði í 2. gr. laga um sölu þjóðjarða. En þar virtist mér hann vera alveg úti á þekju, því að þau lög koma þessu máli alls ekkert við, eins og margbúið er að taka fram. Lög um sölu þjóðjarða eru að eins um heimild fyrir stjórnarráðið til að selja ábúendum þjóðjarðir án sérstaks lagaboðs. Til þess útheimtist þetta álit sýslunefndar, sem háttv. þm. talaði um. En löggjafarvaldið þarf alls ekki þessa yfirlýsing sýslunefndar til þess, að því sé heimilt að ákveða sölu á þjóðjörð eða leyfa hana. Þar hefir sýslunefndin ekkert veto, og þarf ekkert að leyfa. En þar sem sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu hefir mælt á móti sölu þessarar jarðar, og álitið að ekki einu sinni ábúandinn megi fá hana keypta, vegna þess að landið eða sveitin kunni að þurfa á henni að halda til skóla eða stofnana, þá sýnist það þó vera fremur ástæða á móti frumvarpinu en með því.