02.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (511)

36. mál, sala á Kjarna

Framsögumaður (Sig. Hjörleifsson):

Það er ástæðulaust að þvæla um þetta mál lengur. En eg vil aðeins mótmæla því, að þetta sé flokksmál eða um nokkurt flokksofríki að ræða í þessu máli. Enda sést það bezt á því, að einn af meiri hlutanum er fremur andvígur sölunni, en einn minni hluta manna með henni. Og að því er snertir málið að öðru leyti, hafa verið færð full rök fyrir því, að salan kemur á engan hátt í bága við nokkur lög.