23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (523)
36. mál, sala á Kjarna
Ágúst Flygenring:
Eg vildi að eins lýsa því yfir, að eg er sölu jarðar þessarar mótfallin, eins nú og áður og af sömu ástæðum. Eg álít að með henni sé gengið á rétt Hrafnagilshrepps. En sé jörðin seld á annað borð, þá eigi að selja hana fyrir sanngjarnt verð. Landsjóður á ekki að okra á þeim eignum, er hann selur, sízt þegar bæjarfélög eiga í hlut; þau borga nóg samt í landsjóðinn. Eg álít það næga tryggingu fyrir réttu mati á jörðinni, að það er framkvæmt af mönnum undir eiðs tilboð, og slíka matsgjörð vil eg hreint ekki lítilsvirða með því, að færa verðið upp um þriðjung. Það getur ekki verið í öðru skyni gert, en til þess að reyna að hefta söluna, en að hefta hana á þennan hátt tel eg alls eigi rétt. Eg mun því greiða atkvæði með breytingartillögunni um að færa verðið niður, en á móti frumv. í heild sinni.