17.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

44. mál, skipun læknishéraða

Framsögum. (Kristinn Daníelsson):

Nefndin ætlaðist til, að frv. á þgskj. 461 gæti skoðast sem sama frv. og það, er skráð er á þgskj. 177. En nú hefir úrskurður forseta fallið í gagnstæða átt, og vil eg því leyfa mér að leggja til, að ráðum hæstv. forseta um, að samþykkja frv. á þgskj. 177, sé fylgt, og mun þá nefndin reyna að kippa málinu í rétt horf við 3. umræðu.