20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (580)

44. mál, skipun læknishéraða

Ari Jónsson:

Eg ætla að eins að geta þess, að breyt.till. á þgskj. 502 eru að innihaldi hinar sömu sem breyt.till. þær, er fram komu við 2. umræðu. Þær komust ekki að þá vegna þess, að þær voru ekki í því formi, sem þær áttu að vera. Annars vona eg, að hin háttv. deild samþykki tillögurnar.