29.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í B-deild Alþingistíðinda. (582)

46. mál, verslunarbækur

Sigurður Stefánsson:

Frumvarp þetta, sem hingað er komið frá háttv. Nd., verður víst upphaf stærri tíðinda. Þar eru á ferðinni fleiri frv. um verzlun og viðskifti, og þar sem þetta eru alt mjög þýðingarmikil mál, tel eg sjálfsagt, að nefnd sé sett hér í deildinni til þess að íhuga þau. Eg sting því upp á, að kosin sé í mál þetta 5 manna nefnd, þá er umræðunni er lokið. Og má þá vísa til þeirrar nefndar öðrum frumvörpum líks efnis, er þau koma frá neðri deild.