07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (665)

52. mál, bankavaxtabréf Landsbankans

Stefán Stefánsson (6. kgk. þm.):

Mér finst, úr því hitt frumv., sem var rætt hér næst á undan, var afgreitt með rökstuddri dagskrá, sökum þess hve athugavert það væri, þá sé þetta frv. ekki síður athugavert. Eg sé heldur ekki, að starfsfé bankans aukist frekar á þennan hátt. Eg skal því leyfa mér að afhenda tillögu um rökstudda dagskrá í þessu máli, sem eg vildi láta bera upp til atkvæða.