08.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (745)

59. mál, löggilding Skaftáróss

Steingrímur Jónsson:

Eg mun greiða atkvæði með frumv., hvort sem það verður sett í nefnd eða ekki. En eg mæli með því að það verði sett í nefnd, með því að mér finst frumv. nokkuð óákveðið. Í frumv. stendur »við Skaftárós«, en engin nánari takmörk; af því verður ekki séð, hvort staðurinn er fyrir austan eða vestan ósinn. Ef til vill er ósinn færanlegur; rennur máske eitt árið hér og annað árið þar. Þetta þarf að athuga og tilgreina nánar í frumv., og ræð eg því til að nefnd verði kosin.