23.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (819)
68. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Jósef Björnsson:
Eg var einn af þeim, sem við 1. umræðu greiddi atkvæði á móti því, að nefnd væri sett í málið. Þá greiddi eg atkvæði á móti nefndarskipun af þeirri ástæðu, að ef málið ætti að koma til framkvæmda, þá ætti það helzt að gera það strax. Mín skoðun er sú, að öll eftirlaun beri að afnema. Eg lít og svo á, að ef málinu hefði þá verið hraðað, svo sem hægt var, þá hefði ekki þurft að brjóta það »princip«, að lög skuli ekki verka aftur fyrir sig, þótt lögin hefðu verið látin öðlast gildi við þessi ráðherraskifti. En nú er málið komið í það horf, að eg álít að lögin geti ekki náð takmarki þessu, nema með því að verka aftur fyrir sig, því takmarki að öðlast gildi þegar við þessi ráðherraskifti, eins og br.till. á þingskj. 306 fer fram á, en það býst eg við að háttv. deild muni ekki vilja að þessi lög gjöri öðrum lögum fremur, því þá væri hún ekki sjálfri sér samkvæm.
Enn fremur er málið ef til vill ekki nægilega athugað, einkum þegar þess er gætt, að það er slitið út úr eftirlaunalöggjöfinni í heild sinni. Nú er eg því ekki á móti því að setja nefnd í málið, það er vel þess vert að vera athugað, en getur hins vegar ekki tapað neinu úr þessu við töfina.
Héðan af getur það ekki orðið afgreitt frá þinginu, fyr en eftir að hinn nýi ráðherra er skipaður, og hvort hann ber það fram nokkru fyr eða síðar, skiftir engu úr því sem komið er.