07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

70. mál, Skálholt

Lárus H. Bjarnason:

Það má segja um frumv. þetta, að ill hafi verið þess fyrsta ganga, en hálfu verri verður þó önnur ganga þess, þar sem landstjórnin nú á að geta keypt jörðina fyrir hvaða verð, sem seljandi setur á hana, og vona eg að þessi athugasemd nægi til þess, að frumv. fari ekki lengra.