07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
74. mál, hlutabréf Íslandsbanka
Júlíus Havsteen:
Háttv. 5. kgk. þm. sneri út úr orðum mínum, eins og eg hefði komist í mótsögn við sjálfan mig. En það er bygt á rangfærslu eða misskilningi. Eg sagði að eg legði enga áherzlu á yfirráðin, af því að þyngdarpunkturinn hvað þau snertir væri hér, eða fremur hér en erlendis. Eg hefi aldrei litið svo á, að það væri aðalaugnamið frumvarpsins, að ná yfirráðum yfir bankanum; aðalaugnamiðið er að auka starfsfé bankans og bæta úr peningaþörf landsins; og eg vil spyrja hinn háttvirta 5. kgk. þm., hvort hann ekki sem bankafulltrúi sé mér samdóma um það. Eins og það á sér oft stað í daglega lífinu að tveir partar græði á viðskiftum, þá á það sér einmitt líka stað hér. Bæði landsjóður og Íslandsbanki mundu hafa hag af þessum kaupum. Eg skal svo eigi orðlengja frekar um þetta mál. Eg vonast til svo góðs, að það gangi úr deildinni hér sem lög.