20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (898)

78. mál, fjármálanefnd

Flutningsm. (Sigurður Stefánsson):

Eg hefi ekki nema örfá orð að segja um tillöguna. Það hefir verið gjört áður á þingi, að skipa nefnd til að íhuga fjármál landsins, auðvitað í þeim tilgangi, að hún hafi fjárlögin með höndum, þegar þar að kemur. — Eg sé ekki að það sé neitt athugavert og ræð háttv. deild til að samþ. till.