12.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

80. mál, skólabækur

Steingrímur Jónsson:

Eg stend upp að eins til þess að lýsa því yfir, að eg vil styðja till. háttv. 6. kgk. þm. um að skipa svona kenslubókanefnd. Annars er málið ekki nýtt en hefir vakað fyrir þinginu áður. En skipun 5 manna nefndar er svo óákveðið. Nefndin mundi hafa svo óákveðið starfssvið og einkum og sérstaklega verður ekki séð hve mikinn kostnað þetta mundi hafa í för með sér. Mér finst sjálfsagt að kjósa nefnd hér í deildinni, til þess að íhuga allar hliðar málsins, og bera fram tillögur um það, sem væru nokkru ákveðnari en nú er. Eg vil leyfa mér að stinga upp á að nefnd verði skipuð í málið.