17.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (982)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Framsögumaður (Björn Jónsson):
Fremur finnast mér ónot háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) borin fram af vilja en mætti og ákúrur hans með öllu átyllulausar. Hann byrjaði á því að álasa hinni nýju stjórn fyrir það að ekkert fjármálaprogram hafi komið fram í nefndarálitinu. Það er nokkuð skrítið að tala um nýja stjórn áður hún er fædd. Það mætti ef til vill búast við slíku fyrsta daginn, sem hún situr á veldisstóli, en varla fyr. Honum þótti, hinum sama virðulega þm., lítils vert um nefndarál. og taldi þar engar meginreglur hafa fram komið. Þar til er því að svara, að áherzluna ber að leggja á efnið en ekki á lengdina. Með því að um enga nýja stjórn var að ræða, gat og ekki verið um neitt nýtt prógram að tala. Nefndinni var ekki skylt að gera annað en færa rök fyrir br.till. sinum. Og þeirri meginreglu fylgdi nefndin að spara sem mest.
Ekki hefir það verið gert, fremur en áður hefir tíðkast um nefndarálit fjárlaganefndar, að geta um meiri og minni hluta í hverju einstöku atriði; þar getur á ýmsu oltið. Yfirleitt hafa allir nefndarmenn frjálsar hendur um atkvæði sín, eins og venjulega hefir verið.
Eg segi ekki, að flýta þurfi fjárlögunum svo, að síðdegisfundur verði á morgun, ef þm. þykir það bagalegt. Þó þykir mér líklegt, að 30 klst. frestur sé hæfilegur tími til íhugunar, enda geri eg ráð fyrir því, að fjárlögunum verði skift í kafla, svo sem áður hefir tíðkast, og komi þá 1. kafli þeirra til umræðu á morgun. Þetta sýnist mér nægja. Vitanlega eru þetta tilmæli mín og nefndarinnar vegna þess að svo stendur á sem kunnugt er; en engin er það flokksályktun.