04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (1044)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Jón Þorkelsson:
Eg skal strax drepa á þetta atriði. Við gleymdum að athuga það, að hér þurfti eiginlega fjárveitingu á fjáraukalögum. En fyrst það varð nú ekki, verður að bjargast við það fyrirkomulag, að forseti leggi sjálfur fram féð fyrst og fái það svo endurgreitt.
Eg heyri það sagt, að einn h. þm. hafi beint óviðurkvæmilegum orðum að mér, meðan eg var úti, en svo hefir mér verið sagt, að það hafi verið háttv. 2. þm. S. Múl. (J. Ó.) og þá álít eg óþarft að svara því.