25.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)
17. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Þorkelsson:
Eg vildi að eins geta þess, að eg hefi ekkert á móti þeirri pólitísku fermingu, sem háttv. flutnm. (J. Ó.) var að tala um, ef henni yrði haganlega fyrirkomið. Háttv. flutningsmaður talaði um það, að frumv. þetta stefndi svo mjög í sjálfstæðisáttina, sem unt væri. En það er þó auðséð á 20. gr., að svo er ekki. Þar er kjörgengi miðað við þá, sem eru heimilisfastir í veldi Danakonungs. Þessu var þó hægt að þoka til, af því að því máli er svo varið, að við getum hagað því alveg eftir eigin geðþótta. Það var góð upplýsing hjá háttv. flutningsmanni að ákvæðin um kærurétt konungs, er þeir vilja auka inn í stjórnarskrána, merkja það, að hinn háttv. flutnm. vildi hlynna að pólitískum glæpum hér á landi. Ekki vissi eg fyrri að tilgangurinn væri þessi. Eg er flutnm. þakklátur fyrir svona hreinskilna skýringu og vona að menn hafi tekið eftir henni.