08.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)

130. mál, tollalög

Framsögum. (Ólafur Briem):

Tolllaganefndin hefir athugað frumv. þetta. Breytingar þær, sem efri deild hefir gert á því eru að eins orðabreytingar. Í staðinn fyrir orðið »tvípund« vill hún nota kílógram, og í staðinn fyrir »mæli« komi lítri. Breytingar þessar eru þess eðlis, að eg hygg, að frumv. geti ekki strandað á þeim hér í deildinni, heldur verði nú samþykt óbreytt.