29.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (136)

144. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Lárus H. Bjarnason:

Það mun hafa komið til mála í deildinni, að vísa þessu máli til fjárlaganefndarinnar. En með því að þetta er fjáraukalög fyrir liðið fjárhagstímabil, ætti það betur við og er venju samkvæmt, að vísa því til landsreikninganefndarinnar.