01.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)

25. mál, vegamál

Bjarni Jónsson:

Málsmetandi menn úr Dalasýslu hafa skorað á mig að koma fram með frumv., sem innihéldi þau ákvæði, sem eru í 3. og 4. gr. þessa frumv. Eg losna þá við þá fyrirhöfn og vil því fastlega mæla með, að nefnd verði skipuð í þetta mál.