03.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)
28. mál, sala kirkjujarða
Benedikt Sveinsson:
Þetta mál var lítið rætt við 1. umr. þess. Heimildin til að selja þjóðjarðir hefir verið misbrúkuð síðustu árin, og álít eg þess vegna, að ástæða sé til þess að athuga málið nákvæmlega í nefnd, áður en deildin sendir það frá sér. Eg vil þess vegna leyfa mér að leggja til, að kosin sé 3 manna nefnd.