02.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

29. mál, víxilmál

Jón Ólafsson:

Herra forseti. Eg er samdóma háttv. þm. Vestm. (J. M.) í því, að lög þessi eiga miklu meir skylt við víxillögin en lögin frá 10. nóv. 1905 um varnarþing í skuldamálum. Í sjálfu sér eru ákvæði þessara laga nauðsynleg, en fyrirsögninni þarf að breyta, áður en þau eru afgreidd.