07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)

46. mál, lækningaleyfi

Flutningsm. (Jón Magnússon):

Eg hefi leyft mér að bera hér fram frv. samhljóða öðru frv., er lá fyrir síðasta þingi. Vísa eg til ástæðnanna fyrir frv. í Alþingistíðindunum 1909. Eg vænti þess, að háttv. deild setji málið í nefnd til þess að athuga það í samráði við landlækni, því að eftir hans beiðni er málið hér fram flutt.

Eg leyfi mér að stinga upp á 5 manna nefnd í málið.