28.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)

46. mál, lækningaleyfi

Einar Jónsson:

Eg er samþykkur breyt.till. háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.). Það getur verið stórhættulegt að leyfa öllum fúskurum að stunda lækningar. Eg get ekki stilt mig um að minnast á hina fallegu setningu frá háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.). Hann sagði, að þeir sem hefðu traust, hefðu traust. Þetta er víst rétt. Annars hefir verið svo mikið rætt um þetta mál, að þess gerist ekki frekar þörf.